MEPS fyrir tryggingafélög
VÍS hefur notað MEPS frá árinu 2021 við meðhöndlun fasteignatjóna. Sveinn Fjalar Ágústsson, forstöðumaður persónu- og eignatjóna hjá VÍS, segir hér frá reynslu félagsins af notkun kerfisins.
Innleiðing MEPS fór fram í nánu samstarfi VÍS, verktaka félagsins og CAB Group. Í dag er MEPS orðinn eðlilegur og mikilvægur hluti af daglegu starfi við mat, meðhöndlun og eftirfylgni fasteignatjónamála.
Samræmdari vinnubrögð og betri yfirsýn
Þegar VÍS ákvað að innleiða MEPS var markmiðið meðal annars að samræma vinnubrögð, ná betri yfirsýn yfir fasteignatjón og skapa traustari grunn fyrir ákvarðanatöku. Reynslan sýnir að kerfið hefur stutt vel við þessi markmið.
Skýrari samskipti við verktaka og viðskiptavini
MEPS hefur aukið gagnsæi í öllu fasteignatjónaferlinu. Með stöðluðum kostnaðarliðum og verkþáttum vinna bæði VÍS og samstarfsaðilar félagsins út frá sama grunni. Það auðveldar samskipti um umfang verka, kostnað og viðgerðir, bæði við verktaka og viðskiptavini.
Lægri kostnaður og skilvirkari ferlar
Kerfið hefur jafnframt veitt VÍS betri innsýn í kostnað og auðveldað félaginu að greina tækifæri til aukinnar skilvirkni. Með betri upplýsingum í hverju fasteignatjónamáli geta starfsmenn tekið upplýstari ákvarðanir og unnið markvissar og skilvirkar.
Einn áþreifanlegur árangur er að bætt skipulag og samstarf milli VÍS og verktaka hefur stuðlað að tæplega 14% lækkun á raunkostnaði tjóna úr húseigendatryggingu frá árinu 2024.
Umbæturnar hafa jafnframt leitt til styttri afgreiðslutíma og mikillar ánægju viðskiptavina. Í þjónustukönnunum hafa verktakar VÍS fengið 9,3 í meðaleinkunn af 10 mögulegum, en þjónusta VÍS 9,2 af 10 það sem af er ári 2026.
„MEPS hefur reynst okkur afar verðmætt. Kerfið hefur hjálpað okkur að samræma vinnubrögð, auka gagnsæi og veita viðskiptavinum okkar enn betri upplifun við meðhöndlun fasteignatjóna. Þetta skiptir máli fyrir starfsfólkið okkar, samstarfsaðila og síðast en ekki síst viðskiptavini okkar“, segir Sveinn Fjalar.
Mikilvægur þáttur í áframhaldandi þróun VÍS
VÍS vinnur stöðugt að þróun þjónustunnar og nýtir gögn og tækni til að einfalda ferla og bæta upplifun viðskiptavina. Markmiðið er að veita hagkvæmar og vandaðar lausnir og MEPS er mikilvægur þáttur í þeirri vegferð.