Við fögnum 80 ára afmæli!
Við fögnum 80 ára afmæli!
Tæknin hefur breyst. Markaðurinn hefur þróast. Þarfir viðskiptavina hafa tekið breytingum. MEPS og CAB hafa þróast í takt við þessar breytingar.
Frá penna og pappír yfir í stafræna tjónavinnslu
Frá árinu 1946 hefur starfsemi CAB byggst á þeirri hugmynd að safna gögnum um hvernig verk eru unnin í raun. Margt hefur breyst í gegnum árin, bæði tæknin, faggreinar og þarfir viðskiptavina. Markmið okkar hefur þó alla tíð verið það sama: að stuðla að aukinni skilvirkni, öryggi og sjálfbærni í öllu tjónauppgjörsferlinu.
MEPS hefur átt mikilvægan þátt í að færa faggreinina frá handvirkum útreikningum yfir í stafræna tjónavinnslu. Frá penna og pappír yfir í samræmt verklag sem auðveldar samstarf tryggingafélaga og verktaka.
Nú eru liðin 80 ár frá því að þessi vegferð hófst. Í dag höfum við byggt upp sterka stöðu á Norðurlöndum, erum í nánum tengslum við viðskiptavini okkar og höldum áfram að þróast.
Og þetta er rétt byrjunin.