Skilningur á MEPS-hugmyndafræðinni og virði MEPS-vottunar
MEPS er miklu meira en hefðbundið reiknikerfi. Kerfið byggir á sameiginlegri hugmyndafræði og vinnulagi þar sem greiðsla í verkbeiðni byggist á framkvæmdum verkþáttum – ekki skráðum vinnustundum. Að skilja þessa nálgun og reglur hennar er lykilatriði til að ná fram nákvæmum viðskiptum, skýrum samningum og lágmarka ágreining milli aðila.
Hvað felst í MEPS-hugmyndafræðinni?
Kjarni MEPS felst í því að greiðsla í verkbeiðni er ekki bundin við raunverulegan tíma sem fer í verkið, heldur við það sem er unnið. Þóknun verktaka byggist á niðurstöðu samþykktrar MEPS-kostnaðaráætlunar.
Þetta skapar skýran hvata fyrir verktaka til að vinna á skilvirkan hátt og hafa þannig bein áhrif á eigin afkomu.
Ábyrgðarskipting er jafnframt skýr:
- Verktaki ber ábyrgð á innihaldi kostnaðaráætlunar
- Kaupandi fer yfir og samþykkir hana
Þessi skýra umgjörð leggur grunn að skilvirku og arðbæru samstarfi. Þegar sameiginlegur skilningur er á umfangi og forsendum samningsins minnkar þörfin fyrir óþarfa umræður og ágreining.
“Þar sem greiðslur byggjast á fyrirfram reiknuðum einingum en ekki raunkostnaði, er góð þekking á útreikningum forsenda þess að fjárhagsleg nákvæmni náist og kerfið tryggir gagnsæi og samræmda vinnuferla milli kaupenda og verktaka, sem lágmarkar áhættu og ágreining.” --Hrannar Már - MEPS ráðgjafi
Til að fá ítarlegri innsýn er mælt með að kynna sér MEPS reglur og leiðbeiningar.
Próf til að fá Meps vottun verður sett upp í haust
MEPS-vottun er stafrænt próf sem staðfestir að notandi geti beitt MEPS reglum og leiðbeiningum í raunverulegum aðstæðum – bæði í kostnaðaráætlunum og samningaviðræðum.
Vottunin snýst ekki eingöngu um kerfisþekkingu, heldur um að skilja leikreglurnar sem liggja að baki viðskiptunum. Rétt hæfni eykur öryggi í samstarfi og styður við faglega meðhöndlun samninga.
Vottunin er:
- Persónubundin
- Gildir í þrjú ár
- Viðurkennd sem gæðastimpill á þekkingu og fagmennsku
MEPS Reglur og Leiðbeiningar – grunnurinn að árangri
MEPS reglur og leiðbeiningar mynda sameiginlegar leikreglur fyrir notkun kerfisins. Þegar allir aðilar starfa eftir sömu viðmiðum eykst nákvæmni í viðskiptum, ferlar verða skilvirkari og traust vex. Reglurnar skilgreina hvernig nota á MEPS gögn – svo sem kóða, reiknirit og efnisforsendur – við gerð kostnaðaráætlana og samninga. Markmiðið er að tryggja jafnræði þannig að enginn aðili njóti ósanngjarns ávinnings. MEPS gögnin eru byggð á ítarlegum greiningum og rannsóknum sem tryggja að útreikningar í verkbeiðni endurspegli raunverulegar forsendur. Þróun og viðhald reglna og gagna er í höndum sérfræðinga hjá CAB Group. MEPS er því ekki bara verkfæri – heldur sameiginlegur grunnur að faglegum, gagnsæjum og arðbærum viðskiptum.