Language
  • International
  • Svenska
  • Norsk
  • Suomi
  • Finlandssvenska
  • Dansk
  • Deutsch
  • Íslensk
  • Eesti keel
  • Latviešu valoda
  • Lietuvių
CAB
Opið
Loka
Automotive
  • Heimasíðu
  • / Tíðindi
  • / CABAS Climate Calculation hjálpar Werksta að ná sjálfbærni markmiðum sínum.

CABAS Climate Calculation hjálpar Werksta að ná sjálfbærni markmiðum sínum.

Werksta er keðja réttingarverkstæða sem hefur stækkað hratt á síðustu árum og rekur starfsstöðvar í Svíþjóð, Noregi, Finnlandi og Hollandi. Á árinu 2025 gerði Werksta keðjan við alls 130.000 bíla og er í dag einn stærsti aðilinn á sviði tjónaviðgerða í Norður-Evrópu.

Sjálfbærni hefur lengi verið stefnumál hjá Werksta. Til að fá áreiðanleg og nákvæm gögn um loftslagsáhrif starfseminar hefur fyrirtækið ákveðið að nota CABAS Climate Calculation sem eitt af nokkrum verkfærum til að mæla CO₂-fótspor sitt.

Ylva Swenzén er samskipta- og sjálfbærnistjóri hjá Werksta:

„Sjálfbærni er okkur mikilvægt áherslumál. Sem verkstæðiskeðja höfum við í raun tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif. Við vinnum í grunninn með eitthvað sem er umhverfisvænt – að gera við skemmda bíla – en hvernig við veljum að gera það skiptir miklu máli. Verkstæði okkar hafa það að reglu að kanna fyrst hvort hægt sé að gera við skemmda hluti, í öðru lagi að nota notaða varahluti og í síðasta lagi að skipta þeim út fyrir nýja. CABAS Climate Calculation sýnir okkur svart á hvítu hversu mikla losun við spörum með því að vinna á þennan hátt.“

Science Based Targets

Werksta hefur gengið til liðs við Science Based Targets initiative (SBTi), alþjóðlegt framtak sem aðstoðar fyrirtæki við að setja loftslagsmarkmið sem byggjast á vísindalegum grunni og eru í samræmi við Parísarsamkomulagið. Markmiðið er að takmarka hlýnun jarðar við 1,5 °C. Fyrirtæki sem taka þátt í SBTi skuldbinda sig til að draga úr losun á öllum sínum sviðum – Fast 1, 2 og 3 – með það að markmiði að ná kolefnishlutleysi í síðasta lagi árið 2050.

SBTi er almennt talið gullna viðmiðið í loftslagsvinnu og sjálfbærniskýrslugerð í atvinnulífinu og gerir miklar kröfur um bæði gæði gagna og gagnsæi.

„Þetta hefur verið umfangsmikið verkefni. SBTi gerir mjög miklar kröfur til upplýsingagjafar. Við notum vettvang sem heitir Sustainlab til að taka saman heildaryfirlit yfir sjálfbærnigögn okkar. Þar eru margir mælipunktar, allt frá því hvernig verkstæðin eru hituð upp til þess hvernig starfsfólk okkar ferðast til og frá vinnu. CABAS Climate Calculation hefur verið mikilvægur þáttur til að geta tekið loftslagsáhrif varahluta með í okkar skýrslugerð,“ segir Ylva Swenzén.

Til að tryggja gæði mælingana hefur Werksta einnig unnið með IVL swedish Enviromental Institute sem hefur aðstoðað við yfirferð, mat á mælingum og skýrslum sem unnar hafa verið.

„Við höfum fengið mjög góðan stuðning frá IVL þegar kemur að því að skipuleggja hvernig við mælum og upplýsum gögn. Af þeirra hálfu hefur verið mikil ánægja með þau gögn sem við höfum fengið í gegnum CABAS Climate Calculation,“ bætir Ylva Swenzén við.

„Maður er alltaf fasi 3 hjá einhverjum öðrum“

Áhersla Werksta á sjálfbærni byggist ekki eingöngu á metnaði og ábyrgð. Kröfur frá bæði löggjafa og viðskiptavinum aukast stöðugt og að sögn Ylvu Swenzén felast einnig skýrir samkeppnislegir kostir í því að hafa góða yfirsýn á sjálfbærni markmiðum.

„Maður er alltaf fasi 3 hjá einhverjum öðrum – það er að segja sú loftslagsáhrif sem verða til vegna keyptra vara eða þjónustu. Við sjáum að tryggingafélög verða sífellt áhugasamari um að birgjar þeirra starfi með sjálfbærni að leiðarljósi. Á sama tíma getur endurvinnsla einnig skapað fjárhagslegan ávinning, til dæmis með því að gera meira við og endurnýta varahluti í auknum mæli.“

Hringrásarhagkerfið heldur áfram að vaxa og endurnýting og viðgerðir munu líklega gegna sífellt mikilvægara hlutverki í framtíðinni. Í því ljósi er ljóst að sjálfbærni með áherslu á mælanleg loftslagsáhrif og skipulagða skýrslugerð mun verða mikilvægur þáttur í þróun tjónaviðgerðargeirans.

CABAS Climate Calculation er þar með mikilvægt hlutverk að gera tjónaviðgerðariðnaðinn sjálfbærari – og gefur fyrirtækjum eins og Werksta tækifæri til að sameina viðskiptalegan ávinning og raunverulega loftslagsábyrgð.

CABAS Climate Calculation

CABAS Climate Calculation er þjónusta frá CAB sem sýnir kolefnisfótspor tjónaviðgerða byggt á útreikningum í CABAS. Þetta er ný þjónusta fyrir þig sem notanda CABAS. CABAS Climate Calculation eru notaðir til að aðstoða þig við að taka sjálfbærar ákvarðanir við tjónaviðgerðir og veita þér gögn sem þú þarft til að fylgjast með og skila frá þér sjálfbærnivinnu þinni.

© Copyright 2026 CAB Group